Ballantyne fjölskyldan

Latest release: July 8, 2025
Sagas · Historical
Series
3
Books

About this ebook series

Árið er 1860 og systkinin Robyn og Zouga Ballantyne eru um borð í bandarísku seglskipi. Eftir áralanga fjarveru er ferðinni heitið á æskuslóðir í Afríku. Þar hyggjast þau leita uppi föður sinn og halda áfram linnulausri baráttu hans gegn þrælahaldi.

Á meðan á siglingunni stendur uppgötvar Robyn að skipstjórinn aðhefst hluti sem stríða stranglega gegn lífsgildum hennar og við það vakna blendnar tilfinningar innra með henni.

Þegar á land er komið tekur við ósnortin náttúrufegurð, margslungnar persónur og óvænt atburðarás, sem mun reyna á fjölskylduböndin og móta framtíðina.

Tilvalin lesning fyrir aðdáendur Kim Follett og Clive Cussler.

Ballantyne fjölskyldan

Hin upprunalega Ballantyne bókasería samanstendur af fjórum skáldsögum sem spanna árin 1860-1980. Sögurnar gerast í Suður-Afríku og fjalla um ævintýri hinnar áhrifamiklu Ballantyne fjölskyldu milli kynslóða. Bækurnar draga upp raunsæja mynd af þeim sannsögulegu atburðum sem áttu sér stað í heimsálfunni á þessum tíma, svo sem þrælahaldi, arðráni og fleiri afleiðingum nýlendustefnu Breta. Hrífandi frásagnir og spennandi sögufléttur sem fara með lesandann í eftirminnilegt ferðalag.

Metsöluhöfundurinn Wilbur Smith fæddist í Norður-Ródesíu í Afríku árið 1933. Smith sérhæfði sig í sögulegum skáldskap með ævintýralegu ívafi og var þekktur fyrir einstaklega grípandi frásagnarstíl. Hann gaf út 49 bækur á ferli sínum sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og seldust í milljónum eintaka.

Árið er 1860 og systkinin Robyn og Zouga Ballantyne eru um borð í bandarísku seglskipi. Eftir áralanga fjarveru er ferðinni heitið á æskuslóðir í Afríku. Þar hyggjast þau leita uppi föður sinn og halda áfram linnulausri baráttu hans gegn þrælahaldi. Á meðan á siglingunni stendur uppgötvar Robyn ...