Tindátinn staðfasti

· Lindhardt og Ringhof
Ebook
6
Pages

About this ebook

Í tindátaöskjunni er einn sem sker sig úr. Sá er tindátinn sem vantar á annan fótinn, sökum þess að tinið var uppurið þegar búið var að steypa bræður hans. Dátinn lætur fótskortinn þó ekki á sig fá og stendur jafn stöðugur og hinir. Saman flytja þeir á nýtt heimili þar sem kennir ýmissra grasa í leikfangaherberginu. Mest af öllu heillast tindátinn þó af fagurri dansmey, sem líkt og hann stendur á öðrum fæti. Hún er þó umtalsvert hærra sett og býr í kastala. Það kemur ekki í veg fyrir að tindátinn unni henni hugástum.

Þegar nóttin leggst yfir og heimilisfólkið fer að sofa bregða barnagullin á leik. Það gengur á með dansi og látum, hjá öllum nema tindátanum og dansmeynni. Bæði standa staðföst á sínum eina fæti og horfast á af einbeitni. En tindátinn átti eftir að taka á honum stóra sínum og lenda í ýmsum hremmingum áður en hann fengi að nálgast ástina sína.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Tindátinn staðfasti" er ein þeirra sagna Andersens þar sem leikföngin vakna til lífsins, og eiga slíkar sögur enn í dag sér beina leið inn í barnshjörtun. Tindátinn er ekki eins og allir hinir, en lætur það ekki á sig fá og stendur staðfastur á sínu. Sagan hans er falleg frásögn um það, hvernig það að eiga sér takmark og ástríðu getur hjálpað hverjum sem er að takast á við erfiðleika í lífinu. rn
Í tindátaöskjunni er einn sem sker sig úr. Sá er tindátinn sem vantar á annan fótinn, sökum þess að tinið var uppurið þegar búið var að steypa bræður hans. Dátinn lætur fótskortinn þó ekki á sig fá og stendur jafn stöðugur og hinir. Saman flytja þeir á nýtt heimili þar sem kennir ýmissra grasa í ...

Discover more

Rate this ebook

Tell us what you think.

Reading information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can listen to audiobooks purchased on Google Play using your computer's web browser.
eReaders and other devices
To read on e-ink devices like Kobo eReaders, you'll need to download a file and transfer it to your device. Follow the detailed Help Center instructions to transfer the files to supported eReaders.