Sagan af Tuma litla (The Adventures of Tom Sawyer) er eitt af þekktustu verkum Mark Twains, sem og eitt af þekktustu verkum bandarískra bókmennta. Sagan er uppfull af prakkarastrikum, spennu og drama og í henni er að finna eitthvað fyrir alla, bæði unga og aldna.
Samuel Langhorne Clemens (fæddur 30. nóvember 1835, dáinn 21. apríl 1910) var betur þekktur undir höfundarnafninu Mark Twain. Hann reyndi fyrir sér í ýmsum starfsgreinum, áður en hann fann sig í blaðamennsku og skáldskap. Hann var heimsþekktur í lifanda lífi fyrir orðsnilld sína og mælskulist og átti vingott við alls kyns fyrirmenni, bæði í heimalandinu Bandaríkjunum og utan þess. Mark Twain fæddist fljótlega eftir að halastjarna Halleys fór framhjá jörðinni og spáði því að hann myndi fara með henni líka, sem varð eftir, enda lést hann daginn eftir næstu heimsókn halastjörnunnar.