Ævintýri og Sögur

· Lindhardt og Ringhof
Ebook
276
Pages

About this ebook

Lítill, ljótur andarungi reynist vera fallegur svanur. Snædrottningin er með ís í hjartanu og litla hafmeyjan þráir að losna við fjötra hreisturs og sporðs og ganga tveimur fótum meðal manna.

Ævintýraheimur Hans Christians Andersens er flestum að góðu kunnur. Þó eftir hann liggi bæði skáldsögur, leikrit og ljóð eru það listævintýri hans sem lifa með lesendum, jafnt í bóklegri- og munnlegri geymd.

Þó börn séu ötulir lesendur ævintýra höfða sögur H.C. Andersen jafnt til eldri lesenda, sem eru ekki síður færir um að líta milli línanna, sársaukann, þjóðfélagsádeiluna, gleðina og boðskapinn sem þar er að finna. Brugðið er upp mynd af töfrunum í hversdagsleikanum, sem oft er býsna napur í fátæktinni en einnig af sönnum ævintýraheimum, sem leynast undir yfirborðinu.

Safnið Ævintýri og sögur geymir 14 af hans fegurstu ævintýrum í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, sem færði stóran hluta verka Andersens yfir á íslensku.

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Þar blandar hann saman ævintýraminnum munnmælaheimsins og ljúfsárri sköpun sinni svo úr verður hreinn og tær táknheimur sem hægt er að lesa á ýmsa vegu. rnSögur H.C. Andersens hafa verið færðar í ótal listform, svo sem leikrit, ballett og kvikmyndir.
Lítill, ljótur andarungi reynist vera fallegur svanur. Snædrottningin er með ís í hjartanu og litla hafmeyjan þráir að losna við fjötra hreisturs og sporðs og ganga tveimur fótum meðal manna. Ævintýraheimur Hans Christians Andersens er flestum að góðu kunnur. Þó eftir hann liggi bæði skáldsögur...

Discover more

Rate this ebook

Tell us what you think.

Reading information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can listen to audiobooks purchased on Google Play using your computer's web browser.
eReaders and other devices
To read on e-ink devices like Kobo eReaders, you'll need to download a file and transfer it to your device. Follow the detailed Help Center instructions to transfer the files to supported eReaders.