Maestra

· Maestra Trílógían Book 1 · Lindhardt og Ringhof
Ebook
248
Pages

About this ebook

Judith Rashleigh vinnur á daginn á virðulegu uppboðshúsi í London en á kvöldin á vafasömum bar til að ná endum saman. Þegar hún áttar sig á samsæri í dagvinnunni missir hún starfið áður en hún getur komið upp um svikin. Í örvæntingu sinni þiggur hún boð til Frönsku rívíerunnar, sem endar með ósköpum. Alein og í lífshættu þarf Judith að treysta á hæfileika sína til að passa inn í á meðal efnuðu elítunnar á meðan hún reynir að koma upp um listaverkasvindlið sem kostaði hana starfið.

Þetta er fyrsta skáldsagan í seríu sem heldur lesendum í heljargreipum. Bókin hrífur þig með sér í æsispennandi ferðalag um sögusviðið meðal hinnar ríku og frægu í Suður-Evrópu með aðalpersónu sem er eins skörp og Amy Dunne og eins hættuleg og Lisbeth Salander.

Maestra Trílógían

Maestra-trílógían er röð erótískra spennusagna eftir L.S. Hilton, sem er höfundarnafn Lisu Hilton. Serían samanstendur af bókunum Maestra (2016), Domina (2017) og Ultima (2018). í bókunum segir frá Judith Rashleigh sem starfar við uppboðshús í London, en missir vinnuna í kjölfar samsæris sem sendir hana á flótta í heim glæsimennsku, glæpa og blekkinga.

Serían hefur selst í yfir milljón eintökum um allan heim og í vinnslu er kvikmynd sem byggir á henni.

L.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur. Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.

Judith Rashleigh vinnur á daginn á virðulegu uppboðshúsi í London en á kvöldin á vafasömum bar til að ná endum saman. Þegar hún áttar sig á samsæri í dagvinnunni missir hún starfið áður en hún getur komið upp um svikin. Í örvæntingu sinni þiggur hún boð til Frönsku rívíerunnar, sem endar með óskö...

Discover more

Rate this ebook

Tell us what you think.

Reading information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can listen to audiobooks purchased on Google Play using your computer's web browser.
eReaders and other devices
To read on e-ink devices like Kobo eReaders, you'll need to download a file and transfer it to your device. Follow the detailed Help Center instructions to transfer the files to supported eReaders.