Ultima

· Maestra Trílógían Book 3 · Lindhardt og Ringhof
Ebook
284
Pages

About this ebook

Ef þú getur ekki sigrað þá - drepurðu þá.

Hinn glæsilegi listaverkasali Elizabeth Teerlinc veit ýmislegt um falsanir, enda er hún ein af þeim. Hennar sanna nafn, Judith Rashleigh er falið í lygavef. Og að baki hennar liggja þeir sem voguðu sér að standa í vegi fyrir henni.

En nú er hún föst í baráttu milli rússnesku mafíunnar og spillingar innan ítölsku lögreglunnar og neyðist til að falsa listaverk sem hún þarf að selja í uppboðshúsinu þar sem hún hóf feril sinn fyrir löngu síðan.

Judith er eins spennt fyrir að kollvarpa fyrrum vinnuveitanda sínum og hún er fyrir öfgafullu kynlífinu sem hún getur ekki lifað án - en mistök eiga eftir að vera henni dýrkeypt.

Það að setja hennar nýja sjálf í sviðsljósið skapar henni enn meiri hættu. Og uppljóstrar leyndarmálum sem gætu orðið Judith að falli.

Maestra Trílógían

Maestra-trílógían er röð erótískra spennusagna eftir L.S. Hilton, sem er höfundarnafn Lisu Hilton. Serían samanstendur af bókunum Maestra (2016), Domina (2017) og Ultima (2018). í bókunum segir frá Judith Rashleigh sem starfar við uppboðshús í London, en missir vinnuna í kjölfar samsæris sem sendir hana á flótta í heim glæsimennsku, glæpa og blekkinga.

Serían hefur selst í yfir milljón eintökum um allan heim og í vinnslu er kvikmynd sem byggir á henni.

L.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur. Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.

Ef þú getur ekki sigrað þá - drepurðu þá. Hinn glæsilegi listaverkasali Elizabeth Teerlinc veit ýmislegt um falsanir, enda er hún ein af þeim. Hennar sanna nafn, Judith Rashleigh er falið í lygavef. Og að baki hennar liggja þeir sem voguðu sér að standa í vegi fyrir henni. En nú er hún föst í bar...

Discover more

Rate this ebook

Tell us what you think.

Reading information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can listen to audiobooks purchased on Google Play using your computer's web browser.
eReaders and other devices
To read on e-ink devices like Kobo eReaders, you'll need to download a file and transfer it to your device. Follow the detailed Help Center instructions to transfer the files to supported eReaders.