Nótt yfir hafi

· Lindhardt og Ringhof
Ebook
411
Pages

About this ebook

Frá meistara sögulegra spennusagna kemur Nótt yfir vatni sem gerist í upphafi seinni heimsstyrjaldar og fjallar um flóttafólk frá Bretlandi á hættulegu ferðalagi yfir Atlantshafið.

Í sömu mund og Bretland lýsir yfir stríði á hendur Þýskalandi nasistanna fer Pan American Clipper, best útbúna flugvél heims, af stað í sitt síðasta flug til New York, athvarf þeirra sem vilja flýja átökin í Evrópu.

Farþegarnir um borð hafa hver sína ástæðu til að yfirgefa Bretland. Meðal þeirra eru enskur hefðarmaður sem flýr með fjölskyldu sína og formúu í skartgripum; þýskur vísindamaður á flótta frá nasistum; morðingi sem snýr til baka í fylgd FBI; kona sem flýr stjórnsaman eiginmann; og útsmoginn þjófur staðráðinn í að halda þýfi sínu.

Ferðin yfir Atlantshafið verður sífellt flóknari fyrir farþegana sem eru föst hvert með öðru í vélinni. Ekki síst þegar í ljós kemur ráðabrugg sem gæti orðið til þess að þau tapi öll lífinu...

Sjálfur segir höfundurinn að þetta sé með léttari bókum hans, þó hún sé sannarlega byggð á sönnum atburðum og haldi lesanda hugföngnum frá fyrstu síðu.

Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum. Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010. Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar. Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.

Frá meistara sögulegra spennusagna kemur Nótt yfir vatni sem gerist í upphafi seinni heimsstyrjaldar og fjallar um flóttafólk frá Bretlandi á hættulegu ferðalagi yfir Atlantshafið. Í sömu mund og Bretland lýsir yfir stríði á hendur Þýskalandi nasistanna fer Pan American Clipper, best útbúna flugv...

Discover more

Rate this ebook

Tell us what you think.

Reading information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can listen to audiobooks purchased on Google Play using your computer's web browser.
eReaders and other devices
To read on e-ink devices like Kobo eReaders, you'll need to download a file and transfer it to your device. Follow the detailed Help Center instructions to transfer the files to supported eReaders.