Kvikmyndin "Mors Elling" var gerð eftir bókinni.
Bókin fær 3,9 stjörnur af 5 mögulegum hjá notendum Goodreads.
„Sagan af Elling og Kjell Bjarne (...) vermir hjartað með frásögn af vináttu sem er jafn full af húmor og af dapurleika.“ – John Hatley, Goodreads
Ingvar Even Ambjørnsen-Haefs (1956) er norskur rithöfundur, best þekktur fyrir „Elling“ ritröðina, sem inniheldur meðal annars bækurnar Paradís í sjónmáli og Fugladansinn. Allar bækur hans innihalda persónur á jaðri samfélagsins og hann hefur gagnrýnt ýmis samfélagsmein í verkum sínum, ekki síst norska geðheilbrigðiskerfið. Bók hans „Brødre i blodet“ varð að bíómyndinni Elling, sem var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda myndin árið 2001. Þar fyrir utan hafa bækur hans unnið til fjölda verðlauna, m.a. menningarverðlauna Telenor árið 2002. Ingvar Ambjørnsen segist hættur ritstörfum og býr nú í Þýskalandi með konu sinni.