Síðdegis var Saabinum snúið á leið til Nakkila, þar sem Matti bjó, og þar hafði konan hans hitað kaffi handa okkur. Matti sýndi mér hreykinn fjölskyldu sína. Það sem ég man skýrast frá þessari notalegu samverustund er einmitt litli, svarthærði Lauri. Eftir að við höfðum verið saman á óteljandi vöktum skildi leiðir okkar Matta þegar ég var færður í starf rannsóknarlögreglumanns á lögreglustöðinni í Pori þann 1. febrúar 1988.
Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.