Sögukorn

· Lindhardt og Ringhof (Saga Audiobooks) · Narrated by Jóhann Sigurðarson
Audiobook
12 min
Unabridged
Eligible
Want a free 5 min sample? Listen anytime, even offline. 
Add

About this audiobook

Úti er vor og allt í blóma. Gróðurinn er að vakna og ungviðið skríður úr eggjum. Þessi fegurð og birta umhverfisins eru þó í hrópandi andstöðu við það sem á sér stað inni í nærliggjandi kirkju. Þar flytur klerkurinn miklar eldmessur, þar sem hann fordæmir óforbetranlega syndara til eilífrar vítisvistar með tilheyrandi kvölum og pínu.

Prestskonan situr eftir þegar predikuninni er lokið og kemst við. Ekki er það þó af helvítisótta heldur dregur hún í efa að fjöldi bersyndugra sem eigi sér engar málsbætur, sé jafn mikill og orð mannsins hennar benda til. Hjónunum ber ekki fyllilega saman um þetta efni, skorið mun verða úr um málið fyrr en þau grunar.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Sögukornið" er kannski ekki nema lítil saga, en hún segir þó meira en margar sem langar eru. Sönn og einlæg guðstrú er einkenni á mörgum sögum Andersens, en hann hikar heldur ekki við að dæma kirkjunnar þjóna sem hann telur ekki sanna í orðum sínum og gjörðum. Sagan ber raunar nokkurn blæ af Biblíusögunni, þar sem þeim syndlausa var sagt að kasta fyrst.
Úti er vor og allt í blóma. Gróðurinn er að vakna og ungviðið skríður úr eggjum. Þessi fegurð og birta umhverfisins eru þó í hrópandi andstöðu við það sem á sér stað inni í nærliggjandi kirkju. Þar flytur klerkurinn miklar eldmessur, þar sem hann fordæmir óforbetranlega syndara til eilífrar vítis...

Discover more

Rate this audiobook

Tell us what you think.

Listening information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can read books purchased on Google Play using your computer's web browser.