Vesalingarnir I: Bindi 1

· Lindhardt og Ringhof (Saga Audiobooks) · Narrated by Vaka Vigfúsdóttir
Audiobook
11 hr 57 min
Unabridged
Eligible
Want a free 1 hr 12 min sample? Listen anytime, even offline. 
Add

About this audiobook

Jean Valjean er staðráðinn í að snúa baki við glæpsamlegri fortíð sinni og verða að heiðarlegum manni. Eftir margra ára fangelsisvist og eymd tekst honum að skapa sér nafn sem auðugur verksmiðjueigandi og borgarstjóri. Á sama tíma fer lífið ekki ljúfum höndum um hina ungu Fatine sem eignast dóttur utan hjónabands og þarf í kjölfarið að færa fórnir sem ræna hana stoltinu og lífsgæðunum. Vesalingarnir er í senn átakanleg og hjartnæm saga sem lýsir mikilvægi samkenndar og kærleika þegar móti blæs.

Bókaserían Vesalingarnir kom fyrst út árið 1862 og naut umsvifalaust mikilla vinsælda. Bókin hefur verið þýdd á fjölda tungumála og er talin ein áhrifamesta skáldsaga sem gefin hefur verið út í Evrópu. Sagan gerist á fyrrihluta 19. aldar í Frakklandi þegar miklar hræringar eiga sér stað í samfélaginu. Þar fléttast líf ólíkra einstaklinga saman í örlagaríka atburðarás þrunginnar ástríðu, áræðis, og þrautseigju. Eftir skáldsögunni hafa verið gerðar fjölmargar kvikmyndir en árið 2012 fóru Hugh Jackman, Anne Hathaway og Russel Crowe með aðalhlutverk í eftirgerð Vesalingana undir leikstjórn Tom Hoopers. Victor Hugo (1802-1885) var franskur skáldsagna-, ljóða- og leikritahöfundur. Hann er talinn einn fremsti og áhrifamesti rithöfundur Frakklands en Vesalingarnir og Hringjarinn í Notre Dame eru meðal þekktustu skáldsagna hans. Ásamt því að vera einn af máttarstólpum rómantísku stefnunnar á 19. öld var Hugo einnig mikill mannréttindasinni og endurspeglast þau viðhorf í mörgum verka hans. Fjöldi bóka Hugos hefur verið endurgerður í formi sviðsverka og kvikmynda.
Jean Valjean er staðráðinn í að snúa baki við glæpsamlegri fortíð sinni og verða að heiðarlegum manni. Eftir margra ára fangelsisvist og eymd tekst honum að skapa sér nafn sem auðugur verksmiðjueigandi og borgarstjóri. Á sama tíma fer lífið ekki ljúfum höndum um hina ungu Fatine sem eignast dóttu...

Discover more

Rate this audiobook

Tell us what you think.

Listening information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can read books purchased on Google Play using your computer's web browser.