Baskerville–hundurinn

· Lindhardt og Ringhof (Saga Audiobooks) · Narrated by Hjálmar Hjálmarsson
Audiobook
7 hr 34 min
Unabridged
Eligible
Want a free 45 min sample? Listen anytime, even offline. 
Add

About this audiobook

Hvað myndir þú gera ef þér væri sagt að aldargömul bölvun lægi á fjölskyldunni þinni? Myndir þú hlæja að því eða taka því alvarlega?

Sögur segja að risastór og ógnvekjandi hundur hafi elt Baskerville-ættina í kynslóðir og valdið dauða margra þeirra. En er það virkilega djöfullegur hundur sem hrellir ættina – eða manneskja með ill áform? Þegar Sir Charles Baskerville finnst látinn við dularfullar aðstæður lifnar sagan og bölvunin við á ný. Athuguli einkaspæjarinn Sherlock Holmes og félagi hans, Watson læknir, eru fengnir til að aðstoða við rannsóknina. Á meðan rannsóknin þróast áfram koma sífellt fleiri leyndarmál í ljós. Fólk birtist og hverfur, undarleg atvik eiga sér stað og engum er hægt að treysta.

Baskerville-hundurinn er þriðja ævintýri hins víðkunna og úrræðagóða einkaspæjara Sherlock Holmes og er ein þekktasta saga allra tíma. Árið 2003 völdu áhorfendur breska ríkisútvarpsins BBC bókina sem eina af sínum uppáhalds skáldsögum.

Þessi bók er fullkomin fyrir þá sem hafa gaman að spennu og dularfullum ráðgátum. Hún sýnir af hverju Sherlock Holmes er enn í dag einn þekktasti spæjari bókmenntasögunnar.

Skotinn Sir Arthur Ignatius Conan Doyle (1859-1930), var læknir að mennt en varði tíma sínum í skrif á meðan hann beið eftir sjúklingum á læknastofu sinni. Doyle endaði svo með að leggja læknasloppinn á hilluna, í þágu bókmenntanna. Hann er þekktastur fyrir glæpasögur sínar um einkaspæjarann sígilda, Sherlock Holmes, sem mörkuðu tímamót í þeirra glæpasagnahefð sem við þekkjum í dag. Doyle var afkastamikill rithöfundur og kom víða við og telja skrif hans meðal annars til fantasíu, vísindaskáldskapar, leikrita, ljóða og fræðirita.

Hvað myndir þú gera ef þér væri sagt að aldargömul bölvun lægi á fjölskyldunni þinni? Myndir þú hlæja að því eða taka því alvarlega? Sögur segja að risastór og ógnvekjandi hundur hafi elt Baskerville-ættina í kynslóðir og valdið dauða margra þeirra. En er það virkilega djöfullegur hundur sem hre...

Discover more

Rate this audiobook

Tell us what you think.

Listening information

Smartphones and tablets
Install the Google Play Books app for Android and iPad/iPhone. It syncs automatically with your account and allows you to read online or offline wherever you are.
Laptops and computers
You can read books purchased on Google Play using your computer's web browser.